Hamborgarhryggur með léttara meðlæti
- Gotterí & gersemar

Uppskrift fengin frá vinum okkar hjá Gotterí og gersemar, en hægt er að skoða þessa girnilegu uppskrift á vefsíðu þeirra og fjöldi annara sem við mælum svo sannarlega með.

Hamborgarhryggur er alltaf á boðstólnum á þessu heimili á Aðfangadag. Það má þó sannarlega gera oftar hamborgarhrygg og hér kemur hin fullkomna páskaútfærsla af slíkri máltíð fyrir ykkur.

Mig langaði að prófa að gera eitthvað léttara meðlæti en þó svipað og þetta klassíska því það er svo mikill sjarmi yfir svona hátíðlegum veitingum.

Þetta salat var geggjað!

Sósan einföld og undurljúffeng.

Forsoðnar kartöflur steiktar upp úr vel af smjöri og hvítlauk, namm!

Þetta passaði allt fullkomlega saman og þessi máltíð var dásamleg!

Hamborgarhryggur með léttara meðlæti
Fyrir 5-7 manns
Hamborgarhryggur og gljái uppskrift
- Ali hamborgarhryggur um 2,5 kg
- 1 l vatn
- 160 g púðursykur
- 50 ml rauðvínsedik
- 50 ml rjómi
- 3 msk. appelsínusafi (úr appelsínu)
- 3 sneiðar af appelsínu
- Byrjið á því að útbúa gljáann með því að sjóða saman púðursykur og edik. Leyfið að sjóða aðeins og bætið þá rjóma og appelsínusafa saman við. Hitið að suðu að nýju og lækkið síðan hitann og leyfið að malla við lágan hita þar til sykurinn er uppleystur.
- Hellið 1 l af vatni í ofnskúffu neðst í ofninum og stillið hitann á 150°C.
- Setjið hamborgarhrygginn á ofngrind, penslið 1 x með gljáanum. Stingið kjöthitamæli inn í hann miðjan og komið grindinni fyrir í ofninum fyrir ofan skúffuna með vatninu. Penslið 1-2 x á hrygginn á meðan hann er í ofninum á þessum tíma. Ef þið eigið ekki kjöthitamæli er gott að miða eldunartíma við 45 mín til klukkustund á hvert kíló.
- Eldið hrygginn með þessum hætti þar til kjarnhiti sýnir um 55°C og hækkið þá hitann í 210°C, setjið appelsínusneiðarnar ofan á og penslið aftur með gljáa. Eldið þar til kjarnhiti sýnir 67°C og leyfið þá hryggnum að standa í að minnsta kosti 15 mínútur áður en hann er skorinn í sneiðar. Áður en hryggurinn er skorinn má setja eina lokaumferð af gljáa yfir appelsínurnar.
- Geymið soðið sem eftir stendur í skúffunni og restina af gljáanum þar til það kemur að sósugerð.
Sósa uppskrift
- ½ laukur
- 50 g smjör
- 50 ml rauðvínsedik
- 500 ml kjötsoð (eða vatn + kraftur)
- 500 ml rjómi
- 100 ml af gljáa
- Sósulitur
- Salt og pipar
- Maizena sósujafnari
- Saxið laukinn smátt og steikið upp úr smjöri, kryddið með salti og pipar.
- Hellið edikinu yfir laukinn þegar hann er búinn að mýkjast og leyfið því að sjóða niður.
- Bætið þá sigtuðu soði frá hryggnum/vatni + krafti í pottinn ásamt rjóma og gljáa.
- Smakkið til með salti, pipar og meiri krafti ef ykkur finnst þurfa og leyfið að malla.
- Þykkið síðan með Maizenamjöli og litið með sósulit ef þið viljið brúna áferð.
Smjörsteiktar kartöflur
- 1 kg forsoðnar kartöflur (litlar)
- 70 g smjör
- 3 hvítlauksrif
- 1 msk. saxað timian
- Salt og pipar
- Bræðið smjörið á pönnunni og hellið kartöflum út á ásamt því að rífa hvítlaukinn yfir.
- Veltið um á meðalháum hita þar til kartöflurnar eru heitar í gegn og kryddið eftir smekk.
Páskasalat
- 2 Pink lady epli (3 ef þau eru lítil)
- 1 mangó
- 50 g möndlur með hýði
- 30 g dökkt súkkulaði
- 100 g sýrður rjómi
- 150 ml þeyttur rjómi
- 1 msk. sykur
- 1 tsk. salt
- Flysjið eplin og skerið smátt niður, setjið í skál.
- Skerið mangó einnig smátt saman og bætið saman við eplin.
- Skerið möndlur gróft niður og saxið súkkulaðið smátt, bætið saman við ávextina.
- Hrærið sýrða rjómanum ásamt sykri og salti næst saman við.
- Að lokum má vefja þeytta rjómanum saman við allt með sleikju.
- Geymið í kæli fram að notkun.
Ali hamborgarhryggurinn klikkar ekki frekar en fyrri daginn. Hann er léttur og bragðgóður og alls ekki of saltur en svo er bara mikilvægt að elda hann ekki of lengi því þá verður hann þurr!
