Afmæliskaka

Fjarðarkaup, einstök verslun í 50 ár!

Uppskrift í samstarfi við Gotterí og gersemar

Fyrir 10-12 manns


Súkkulaðibotnar

  • 250 g hveiti
  • 350 g sykur
  • 80 g Síríus kakó
  • 2 tsk. matarsódi
  • 1 tsk. salt
  • 4 egg
  • 250 ml AB mjólk
  • 150 ml ljós matarolía
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 250 ml heitt vatn


  1. Hitið ofninn í 170°C , setjið bökunarpappír í botninn á fjórum 15 cm smelluformum og spreyið vel með matarolíuspreyi.
  2. Setjið þurrefnin í hrærivélarskálina og blandið létt saman.
  3. Pískið eggin í stóra skál og bætið AB mjólk, matarolíu og vanilludropum saman við pískið vel.
  4. Að lokum má píska heita vatnið saman við vökvann og hella honum yfir þurrefnin og hræra á meðan á lægstu stillingu.
  5. Skafið niður hliðarnar á skálinni og blandið vel, athugið að deigið er þunnt.
  6. Skiptið jafnt niður í bökunarformin og bakið í um 30 mínútur eða þar til prjónn kemur út með smá kökumylsnu á endanum, ekki blautu deigi.
  7. Kælið botnana og skerið ofan af þeim áður en þið setjið kökuna saman.


Súkkulaðikrem


  • 300 g smjör við stofuhita
  • 150 g rjómaostur við stofuhita
  • 60 g Síríus kakó
  • 900 g flórsykur
  • 80 ml rjómi
  • 2 tsk. vanilludropar


  1. Þeytið saman smjör, rjómaost og kakó þar til létt, skafið niður hliðarnar.
  2. Bætið flórsykri og rjóma saman við til skiptis, þeytið og skafið niður á milli.
  3. Að lokum fara vanilludropar saman við og þeytið áfram þar til létt en þétt súkkulaðikrem hefur myndast.


Samsetning og skreyting

  • 4 x súkkulaðibotnar (sjá uppskrift að ofan)
  • Súkkulaðikrem (sjá uppskrift að ofan)
  • 300 g Síríus perlur
  • 100 g Síríus suðusúkkulaði
  • 60 ml rjómi
  • Afmæliskerti að eigin vali


  1. Setjið um 1 cm þykkt lag af súkkulaðikremi á milli botna og hjúpið síðan alla kökuna með þunnu lagi að kremi, setjið í kæli í um 15 mínútur.
  2. Setjið þá annað lag af kremi á kökuna, um ½ cm þykkt á alla kökuna að utan og sléttið úr eins og unnt er með kökuspaða.
  3. Setjið súkkulaðiperlurnar í skál, fyllið lófann af perlum og dragið aðeins upp hliðina á kökunni frá botni og aðeins upp á hana, allan hringinn (sjá video).
  4. Kælið nú aftur kökuna í um 30 mínútur og útbúið síðan súkkulaðihjúpinn.
  5. Saxið suðusúkkulaðið smátt og hitið rjómann að suðu, hellið honum yfir saxað súkkulaðið og pískið saman þar til slétt súkkulaðibráð hefur myndast.
  6. Takið kökuna úr kæli og hellið súkkulaðibráð á toppinn og ýtið aðeins fram af með kökuspaða allan hringinn (líka hægt að setja í flösku/túpu ef þið viljið stýra „drippinu“ betur).
  7. Kælið að nýju í um 30 mínútur og skreytið síðan toppinn.
  8. Setjið restina af súkkulaðikreminu í sprautupoka með stórum stjörnustút (t.d Wilton 1M eða2D), sprautið litla toppa allan hringinn og setjið súkkulaðiperlur ofan á.
  9. Stingið síðan kertum í kökuna miðja og geymið í kæli fram að notkun.

15 April 2025
Þessi hátíðlega uppskrift að páskalambi frá Kjarnafæði sameinar hefðbundna íslenska matargerð við nýstárlegar útfærslur. Lambakjötið er borið fram með ljúffengri foyot-sósu, stökkum „roasties“ kartöflum, sveppa- og laukasalati ásamt steiktu brokkólíní og blaðkáli með ostinum Feyki. Fullkominn réttur fyrir veisluhöld um páskana.
8 April 2025
Hér á ferðinni er ofureinföld og undurljúffeng ostakaka! Guðrún Veiga gerði þessa uppskrift fyrir einhverju síðan og ég setti hana á listann minn og loksins náði ég að prófa! Það eina sem ég get sagt er „af hverju prófaði ég hana ekki fyrr“!